Category:Godafoss
From Wikimedia Commons, the free media repository
Goðafoss í Skjálfandafljóti þykir einn af fegurstu fossum landsins. Sagt er að Þorgeir Ljósvetningagoði hafi steypt goðalíkneskjum sínum í fossinn eftir að hafa játast undir kristna trú árið 1000 og er talið að fossinn dragi nafn sitt af þessum atburði. Önnur skýring á nafngiftinni er sú, að æsir eða vættir hafi tekið sér bústað í fögrum fossum til forna. Goðafoss fellur fram af hraunbrún og er 12 metrar á hæð þar sem hann er hæstur. Hann greinist í tvo megin fossa auk nokkurra smærri eftir vatnsmagni, sem er mjög breytilegt. Skjálfandafljót er fjórða lengsta vatnsfall landsins, um 180 km frá upptökum til ósa. Vatn þess er allt í senn dragá, lindá og jökulvatn. Lindavatnið er aðalvatn fljótsins.
Media in category "Godafoss"
The following 29 files are in this category, out of 29 total.